Netbanki einstaklinga

  • Forsíða
  • Netbanki einstaklinga
  • Netbanki fyrirtækja
  • Farsímabanki
  • Landsbankinn.is
  • English
  • Polski
  • Innskráning með notandanafni
  • Innskráning með rafrænum skilríkjum

Upplýsingar

Aðgerð tókst

Óvænt villa

  •  

Vinsamlegast leiðréttið eftirfarandi svæði

Netbankinn styður ekki viðkomandi vafra

  • Landsbankinn styður nýrri útgáfur Internet Explorer en einnig vafrana Google Chrome og Mozilla Firefox. Uppfærðu vafrann þinn hér
   
    
Innskrá í netbanka
     
Auðkenna mig

Augnablik

Auðkenning send á farsímanúmer

Komdu í viðskipti

Þú getur komið í viðskipti hjá Landsbankanum á örfáum mínútum í Landsbankaappinu eða hér á vefnum. Skráning í viðskipti

Séríslenskir stafir

Á á Ð ð É é Í í
Ó ó Ú ú Ý ý Þ þ
Æ æ Ö ö Loka
  • Um netbankann
  • Spurningar og svör

Aðgengilegur, einfaldur og þægilegur netbanki

Hentar vel fyrir spjaldtölvur

Letur, töflur, hnappar og innsláttarreitir eru nægilega stórir svo þú getur auðveldlega notað netbankann í spjaldtölvunni eða öðrum tækjum - ekki bara í borðtölvunni.

Skýr samantekt

Þú færð skýra og einfalda samantekt á fjárhagslegri stöðu þinni um leið og þú hefur skráð þig inn. Auðvelt er að kafa dýpra og fá nánari upplýsingar um hvern þjónustuþátt.

Öryggi

Í netbankanum er öryggiskerfi frá fyrirtækinu RSA. Kerfið framkvæmir áhættugreiningu með það fyrir augum að hámarka öryggi og koma í veg fyrir fjársvik. Að öllu jöfnu finnur viðskiptavinurinn þó ekki fyrir kerfinu.

Nánar um öryggi í netbankanum

ipad

Almennt um netbankann

  • Hvaða takkar eru þetta með láréttu strikunum þremur sem ég sé víða í netbankanum?

    Þetta er aðgerðahnappurinn svokallaði. Víða í netbankanum má finna þennan samhengisbundna aðgerðahnapp sem einkenndur er með þremur láréttum strikum. Þar undir má finna þær aðgerðir sem eiga við hverju sinni.

    Netbanki svör

  • Virkar netbankinn á spjaldtölvu?

    Já, netbankinn virkar mjög vel í spjaldtölvum.

  • Virkar netbankinn í snjallsíma?

    Já, netbankinn virkar vel á snjallsíma. Hann er þó sérstaklega hugsaður fyrir einkatölvur og spjaldtölvur en við bendum á Landsbankaappið fyrir Android og Apple snjallsímanotendur. Einnig er hægt að nota farsímavefinn L.is.

Öryggiskerfið

  • Hvernig virkar öryggiskerfið?

    Sem viðskiptavinur bankans þekkjum við hvernig þú berð þig að í viðskiptum við bankann, hvernig færslurnar eru, hvenær og hvaðan. Ef við verðum vör við atferli sem ekki líkist hefðbundinni hegðun þinni, munum við óska eftir að þú gerir grein fyrir þér, svo við getum verið viss um að það sért þú en ekki einhver annar sem hefur fengið aðgang að netbankanum þínum. Slíkt mun aðeins gerast einstaka sinnum. Að öllu jöfnu verða engar beiðnir um viðbótarupplýsingar. Við gætum til dæmis óskað eftir staðfestingu þess að þú sért í raun og veru að reyna að fá aðgang en ekki einhver annar ef einhver reynir að skrá sig inn með þínu notandanafni og aðgangsorði úr tölvu í öðru landi skömmu eftir að þú skráir þig út úr tölvunni sem þú notar venjulega heima.

  • Hvenær er óskað eftir viðbótarauðkenningu?

    Það er aðeins beðið um viðbótarauðkenningu þegar tiltekin aðgerð eða færsla virðist vera óvenjuleg eða stangast á við hefðbundna hegðun þína í netbankanum. Einnig verður þú beðin(n) um að setja inn öryggisupplýsingarnar þínar þegar þú skráir þig inn í netbankann í fyrsta skipti.

    Hegðun telst óvenjuleg eða ekki dæmigerð ef eitthvað við hana virðist ekki samræmast því hvernig og hvaðan þú sinnir venjulega bankaviðskiptum þínum í netbankanum. Ef aðgerðin sem beðið er um virðist ekki dæmigerð fyrir þig, verður þú beðin(n) um nánari upplýsingar til að staðfesta að það sért þú en ekki einhver annar aðili sem er að nota netbankann í leyfisleysi.

  • Hvað þarf ég að gefa upp mörg símanúmer og hvernig skipti ég um númer?

    Það þarf að vera að minnsta kosti eitt símanúmer en við hvetjum þig til að gefa upp allt að þrjú símanúmer. Ef við þurfum að bera kennsl á þig, gætir þú fengið sjálfvirkt símtal í eitt af þeim símanúmerum sem þú gafst upp. Það er mikilvægt að gefa upp númer þar sem hægt er að ná í þig á meðan þú ert að nota netbankann. Til dæmis, ef þú notar netbankann í vinnunni ættirðu að gefa upp vinnusíma eða farsíma í vinnunni svo hægt sé að ná í þig þar. Það tryggir að þú getir haldið áfram í netbankanum án nokkurra óþæginda.

    Ef þú þarft að skipta um símanúmer skaltu annað hvort breyta því í stillingum netbankans eða hafa samband við þjónustuver bankans. Þegar þú notar netbankann gætu komið af og til beiðnir um að þú staðfestir að upplýsingar þínar séu réttar.

  • Hvernig kemur þetta kerfi í veg fyrir fjársvik?

    Ef notandanafni þínu og aðgangsorði er stolið, verður þjófurinn að svara öryggisspurningunum þínum rétt eða svara símtali í einu af þeim símanúmerum sem þú gafst upp áður en hann fær aðgang að netbankanum þínum eða lýkur sviksamlegum viðskiptum. Ef notandinn getur ekki veitt þær upplýsingar, eða ef ekki næst í hann í síma, verður lokað á hann. Með þessum viðbótum hámörkum við öryggi í netbankanum þínum, um leið og þín eigin upplifun verður þægilegri.

Hvar finn ég ...

  • A/B gíró?

    Undir Ógreiddir reikningar er flipi sem heitir Greiðslu- og gíróseðlar.

    Netbanki svör

  • forsíðuna aftur/síðuna mína?

    Alltaf er hægt að komast á forsíðu netbankans með því að smella á Landsbankamerkið efst í vinstra horninu.

    Netbanki svör

  • greiðsluþjónustu?

    Til þess að finna greiðsluþjónustu/greiðsludreifingu velur þú "Ógreiddir reikningar" efst á síðunni, síðan velur þú flipann lengst til hægri sem er merktur "Greiðsludreifing"

    Netbanki svör

  • Iban og Swift?

    Iban númer fyrir hvern reikning má finna undir bankareikningum, í færsluyfirliti hvers reiknings. Ýtið á "nánar örina" til að sjá númerið fyrir viðkomandi reikning.
    Swift númer Landsbankans er ávallt það sama: NBIIISRE og má finna á forsíðu www.landsbankinn.is.

    Netbanki svör

  • Meniga?

    Finna má Meniga frá forsíðunni undir Stöðuyfirliti

    Netbanki svör

  • PIN?

    Til þess að finna PIN fyrir kreditkort ferð þú í kreditkortayfirlit, þar er svo hnappur merktur PIN sem þú smellir á.

    Netbanki svör

    Til þess að finna PIN fyrir debetkort ferðu í færsluyfirlit reikningsins, þar er svo hnappur merktur PIN sem þú smellir á.

    Netbanki svör

  • rafræn skjöl?

    Til þess að finna rafræn skjöl velur þú flipann merktan því á upphafssíðunni.

    Netbanki svör

  • stillingar?

    Stillingar má finna undir þrístrikaða reitnum efst í hægra horninu.

    Netbanki svör

  • skilaboðaskjóðuna?

    Skilaboð birtast undir flipa á forsíðu netbankans sem merktur er "Skilaboð". Einnig má sjá yfirlit yfir nýjustu skilaboð í valmyndinni efst í hægra horni netbankans sem merkt er með þremur láréttum strikum. Hún er aðgengileg af öllum síðum netbankans, ekki bara forsíðunni. Þegar ný skilaboð berast birtist rauður kassi sem sýnir fjölda ólesinna skilaboða.

    Netbanki svör

  • tilkynningar og kvittanir?

    Valmöguleikinn að senda tilkynningu eða kvittun á viðtakanda vegna greiðslu kemur fram við lok greiðslunnar, þá kemur upp gluggi með ýmsum valmöguleikum til að senda kvittanir.

    Netbanki svör

  • útskráningu?

    Útskráningarhnappinn má finna í valmyndinni efst í hægra horni netbankans sem merkt er með þremur láréttum strikum. Þá opnast þessi valmynd og þú velur þar útskrá.

    Netbanki svör

  • þjóðskrá?

    Til þess að leita í Þjóðskrá smellir þú á aðgerðarhnappinn efst hægra megin á síðunni, þá færðu upp glugga þar sem er meðal annars hægt að velja Þjóðskrá

    Netbanki svör

Hvernig ...

  • breyti ég hvaða upplýsingar birtast á forsíðunni?

    Með því að smella á tannhjólið í samantektarkössunum efst á síðunni má velja hvaða upplýsingar birtast.

    Netbanki svör

  • eyði ég valgreiðslum?

    Ef smellt er á þrístrikaða reitinn hægra megin við valgreiðsluna koma upp aðgerðir, þ. á m. að eyða viðkomandi reikningi.

    Netbanki svör

  • fæ ég nýtt lykilorð?

    Ef þú gleymir lykilorðinu þínu þarft þú að koma við í næsta útibúi Landsbankans og sækja nýtt lykilorð hjá þjónustufulltrúa gegn framvísun skilríkja.

  • greiði ég greiðsluseðil handvirkt?

    Til þess að greiða greiðsluseðil handvirkt velur þú "Ógreiddir reikningar" efst á síðunni og svo flipann "Greiðslu- og gíróseðlar"

    Netbanki svör

  • greiði ég inn á kreditkort hjá öðrum?

    Fljótlegasta leiðin er af síðunni þinni með því að smella í þrístrikaða aðgerðahnappinn hægra megin við bankareikninginn þinn. Þar er aðgerð sem heitir "greiða inn á kreditkort".

    Netbanki svör

  • prenta ég út gögn/kvittanir?

    Ef um reikningsyfirlit er að ræða er einfalt að ýta á ctrl-P á Windows eða slaufa-P á Mac og yfirlitið prentast út á einfaldan og skýran hátt.

    Einnig er hægt að vista yfirlitið í Excel skjal með því að ýta á bláa hnappinn, hægra megin ofan við yfirlitið.

    Netbanki svör

    Ef um staka millifærslu er að ræða er einfalt að sækja kvittunina sem PDF skjal og prenta út.

    Netbanki svör

  • skipti ég um tungumál?

    Tungumálastillingar má finna í valmyndinni efst í hægra horni netbankans sem merkt er með þremur láréttum strikum. Þar má velja á milli íslensku, ensku og pólsku.

    Netbanki svör

  • sæki ég um aðgang að netbanka?

    Þú getur stofnað aðgang að netbanka einstaklinga í Landsbankaappinu eða hér á síðunni gerast viðskiptavinur. Til þess að stofna aðganganginn þarftu að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum.

    Við nýskráningu færð þú aðgang að netbanka auk bankareiknings og getur valið um fleiri þjónustuþætti svo sem debetkort, sparnaðarreikning og verðbréfaviðskipti.

    Ef þú átt ekki möguleika á að nota rafræn skilríki getur þú mætt í næsta útibú Landsbankans og framvísað gildum persónuskilríkjum.

  • vista ég þekktan viðtakanda?

    Netbankinn vistar sjálfkrafa alla viðtakendur sem millifært hefur verið til síðustu tvö ár. Á millifærslusíðunni má finna lista yfir alla þessa þekktu viðtakendur. Þú getur einnig útbúið sérstakan lista með eftirlætisviðtakendum þínum svo þú getir fundið þá strax.

    Netbanki svör

Loka glugga

Hafðu samband 410 4000

landsbankinn@landsbankinn.is
MC152 v13.4.1.0